Lykilleikmaður 21. umferðar Dominos deildar karla var leikmaður Njarðvíkur, Logi Gunnarsson. Í sigri liðsins á Tindastól í æsispennandi tvíframlengdum leik skoraði Logi 24 stig, tók 4 fráköst, gaf 10 stoðsendingar og stal 3 boltum.
Aðrir tilnefndir voru leikmaður Grindavíkur, Dagur Kár Jónsson, leikmaður Stjörnunnar, Tómas Þórður Hilmarsson og leikmaður ÍR, Ryan Taylor.
Lykilleikmaður 21. umferðar Dominos deildar karla? #korfubolti
— Karfan.is (@Karfan_is) March 5, 2018




