HomeFréttirLykill: Danielle Victoria Rodriguez

Lykill: Danielle Victoria Rodriguez

 

Lykilleikmaður 13. umferðar Dominos deildar kvenna var leikmaður Stjörnunnar, Danielle Rodriguez. Í sigri Stjörnunnar á erfiðum útivelli í Borgarnesi skoraði Rodriguez 46 stig, tók 11 fráköst, gaf 11 stoðsendingar og stal 3 boltum. Í heildina skilaði hún 59 framlagsstigum fyrir liðið í leiknum, en það er það mesta sem nokkur leikmaður hefur gert í einum leik það sem af er vetri.

 

Aðrar tilnefndar voru leikmaður Breiðabliks, Ísabella Ósk Sigurðardóttir, leikmaður Hauka, Helena Sverrisdóttir og leikmaður Vals, Alexandra Petersen.

 

Fréttir
- Auglýsing -