Lykilleikmaður 22. umferðar Dominos deildar kvenna var leikmaður Keflavíkur, Brittanny Dinkins. Á 24 mínútum spiluðum í nokkuð öruggum sigri liðsins á Snæfell skoraði Dinkins 40 stig (73% skotnýting), tók 5 fráköst, gaf 5 stoðsendingar og stal 3 boltum.
Aðrar tilnefndar voru leikmaður Skallagríms, Carmen Tyson Thomas, leikmaður Hauka, Whitney Frazier og leikmaður Breiðabliks, Whitney Knight.
Lykilleikmaður 22. umferðar Dominos deildar kvenna? #korfubolti
— Karfan.is (@Karfan_is) March 1, 2018




