Lúxemborg komst á verðlaunapall þegar liðið fagnaði sigri, 93-79, gegn Andorra í hreinum úrslitaleik um þriðja sætið.
Andorra komst í fjögur núll strax á upphafsmínútunum og ætluðu sér augljóslega stóra hluti. Lúxemborg jöfnuðu hins vegar fljótlega og voru í bílstjórasætinu fram eftir fyrri hálfleik. Andorra jafnaði metin, 36-36, þegar skammt var eftir af fyrri hálfleik og leiddu í hálfleik 37-40.
Mætti segja að „haust“ bragur væri yfir leiknum en alls töpuðust 20 boltar í fyrri hálfleik. Danell Stephens var atkvæðamestur Lúxara í hálfleik með 10 stig og 5 fráköst en hjá Andorra var Xavier Galera Ruz með 9 stig og 4 stoðsendingar.
Andorra byrjaði seinni hálfleik með miklum látum og með tveimur þriggja stiga körfum frá Gelera Ruz, á aðeins tveimur mínútum, komst Andorra í 39-48. Andorra náði mest 13 stiga mun í stöðunni 41-54. Eftir að leikmenn Lúxemborg höfðu mjatlað niður muninn komu tvær risa körfur frá Tom Schumacher sem breytti stöðunni í 53-57. Schumacher kom Lúxemborg svo tveimur stigum yfir með en einni þriggja stiga körfunni en Andorra menn jöfnuðu leikinn fyrir loka leikhlutann.
Jafnt var á öllum tölum í fjórða leikhluta og liðin skiptust á að skora. Um miðjan leikhlutann komst Lúxemborg, með Schumacher í broddi fylkingar, sex stigum yfir og áður en langt um leiddi voru þeir komnir 11 stigum yfir. Einfaldlega of stór biti fyrir Andorra og Lúxemborg stóð uppi sem sigurvegari leiksins og tekur því á móti bronsinu eftir leik Íslands og Svartfjallalands á morgun.
Tom Scuhmacher fór hamförum í seinni hálfleik og setti niður 21 stig af sínum 30 í hálfleiknum. Hann var jafnframt með 5 stoðsendingar. Danell Stephens bætti svo við 20 stigum og tók 10 fráköst.
Hjá Andorra var Xavier Gelera Ruz með 19 stig og 10 stoðsendingar og Cinto Gabriel Morilla var honum næstur með 13 stig og 5 fráköst.
Mynd/ Bára Dröfn – Tom Schumacher var allt í öllu hjá Lúxemborg




