HomeFréttirLúxemborg sigraði Möltu örugglega

Lúxemborg sigraði Möltu örugglega

Kvennalið Lúxemborg sigraði Möltu nokkuð örugglega, eða með 22 stiga mun, 64 gegn 42. Leikurinn, sem fór þó frekar hratt af stað, var, fyrir utan fyrsta leikhlutann (sem fór 18-16 fyrir Lúxemborg) eftir það aldrei spennandi. Í hálfleik leiddi Lúxemborg með 9 stigum (34-25) og sigraði svo einnig hinn seinni með 13 stigum.

Lokatölur voru 64-42, þar sem að leikmaður Lúxeborg, Cathy Schmit, var atkvæðamest með 19 stig, 5 fráköst, 5 stoðsendingar og 4 stolna bolta á þeim rétt rúmu 35 mínútum sem hún spilaði í leiknum.

Myndasafn

Umfjöllun / Davíð Eldur

Myndir / Bára

Fréttir
- Auglýsing -