spot_img
HomeFréttirLovísa með eitt af tilþrifum vikunnar hjá Marist

Lovísa með eitt af tilþrifum vikunnar hjá Marist

Lovísa Björt Henningsdóttir sem leikur með Marist í bandaríska háskólaboltanum fer vel af stað með liðinu á þessu tímabili. 

 

Í sigri liðsins á Boston University síðasta laugardag var Lovísa með 15 stig, 5 stoðsendingar og lék um 35 mínútur í góðum leik. Í leiknum átti Lovísa varin bolta rauk fram og fékk gott sniðskot. Tilþrif sem í dag voru tilnefnd sem tilþrif vikunnar hjá Marist háskólanum. 

 

Marist er nú búið að leika 10 leiki á tímabilinu og vinna þrjá. Þar af hafa síðustu tveir leikir unnið og því má segja að liðið sé að komast á skrið. Lovísa hefur verið í byrjunarliði í öllum leikjum liðsins en hún er nú á sínu öðru tímabili hjá liðinu. 

 

Hægt er að sjá tilþrif Lovísu hér að neðan:

 

Fréttir
- Auglýsing -