spot_img
HomeFréttirLovísa Falsdóttir í Breiðablik

Lovísa Falsdóttir í Breiðablik

 

Samkvæmt heimildum mun Lovísa Falsdóttir leika með Breiðabliki í Dominos deild kvenna á næsta tímabili. Lovísa er 23 ára gamall bakvörður sem lék með meistaraflokki Keflavíkur frá árinu 2011, áður en hún var svo með liði Grindavíkur sem féll úr deildinni á síðasta tímabili. Á 14 mínútum spiluðum að meðaltali í 23 leikjum með Grindavík á síðasta tímabili, skilaði hún 2 stigum, 2 fráköstum og stoðsendingu að meðaltali í leik.

 

Breiðablik verður eini nýliði Dominos deildarinnar á næsta tímabili, en eftir að hafa hafnð í öðru sæti deildarkeppninnar, sigraði liðið Þór Akureyri í úrslitaeinvígi um sæti í deild þeirra bestu.

 

Fréttir
- Auglýsing -