spot_img
HomeFréttirLove frá í 6-8 vikur vegna handarbrots

Love frá í 6-8 vikur vegna handarbrots

Kevin Love verður frá leik með NBA liði Minnesota Timberwolves næstu 6-8 vikurnar þar sem hann handarbrotnaði á morgunæfingu.
 
Brotið er á hægri hönd, skothendi Love og dæsa forsvarsmenn Timberwolves þessi misserin þar sem Spánverjinn Ricky Rubio er einnig fjarverandi sökum hnémeiðsla og búist við að hann missi mögulega af sex fyrstu vikum tímabilsins með liðinu.
 
Fyrsti leikur Minnesota í deildinni er á heimavelli þann 2. nóvember næstkomandi þegar Sacramento Kings koma í heimsókn.
  
Fréttir
- Auglýsing -