Sjö leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Í Toyota Center í Houston lögðu heimamenn í Rockets lið Boston Celtics. Sigurleikurinn sá fimmtándi í röð fyrir liðið, sem er sem fyrr með besta árangur allra liða í deildinni. Búið að sigra 49 leiki og tapa aðeins 13 þegar 20 leikir eru eftir af tímabilinu.
Verðandi verðmætasti leikmaður deildarinnar, James Harden, stórkostlegur fyrir Rockets í leiknum. Skoraði 26 stig, tók 7 fráköst, gaf 10 stoðsendingar og stal 5 boltum á þeim 37 mínútum sem hann spilaði í leiknum.
Í San Antonio lögðu Los Angeles Lakers heimamenn í Spurs. Lakers verið á nokkurri siglingu undanfarið, en með sigrinum í nótt kláruðu þeir fyrstu útivallarferðina sína með 100% árangri (4/4) síðan árið 2009.
Fyrir Lakers var það ungstirnið Lonzo Ball sem kláraði leikinn. Setti þrjú stór þriggja stiga skot á lokamínútum leiksins sem unnu leikinn fyrir þá. Í heildina skoraði Ball 18 stig, tók 7 fráköst, gaf 11 stoðsendingar og varði 2 skot á 34 mínútum spiluðum.
Memphis Grizzlies 100 – 107 Orlando Magic
Denver Nuggets 126 – 117 Cleveland Cavaliers
Detroit Pistons 96 – 105 Miami Heat
Boston Celtics 120 – 123 Houston Rockets
Los Angeles Lakers 116 – 112 San Antonio Spurs
Oklahoma City Thunder 100 – 108 Portland Trail Blazers
Utah Jazz 98 – 91 Sacramento Kings




