Verðandi NBA leikmaðurinn Lonzo Ball frumsýndi í gærkvöldi nýja skólínu sem ber nafn hans. Haldið er að Ball, sem lék með háskólaliði UCLA háskólans á síðasta tímabili, verði valinn með einum af fyrstu þrem valréttum komandi nýliðavals NBA deildarinnar og að þar sé mögulega á ferðinni næsta ofurstjarna körfuknattleiksheimsins. Mikið hefur verið rætt og ritað um hann síðastliðna mánuði, bæði vegna augljósra hæfileika hans, en einnig vegna framgöngu föður hans, LaVar Ball, í fjölmiðlum. Lonzo er elstur þriggja bræðra, en búist er við að hinir tveir eigi eftir að fara sömu leið og hann, þ.e. til UCLA í eitt ár áður en að þeir fara svo í NBA deildina.
Fjölskyldan á þetta vörumerki, BBB, eða Big Baller Brand og virðist sem svo að nú verði ekki einungis körfuboltaskór, heldur einnig inniskór til sölu frá þeim. Eitthvað hefur verðið verið gagnrýnt á skónum, en körfuboltaútgáfan mun kosta rétt undir 60 þúsund krónum og inniskórnir í kringum 23 þúsund krónur.
Þetta hafði fyrrum stjörnuleikmaðurinn Shaquille O´Neal að segja um málið:
Hey @Lavarbigballer real big baller brands don't over charge kids for shoes. pic.twitter.com/N2U0VPXXyt
— SHAQ (@SHAQ) May 4, 2017
Auglýsing fyrir skóna:
Dæmi hver fyrir sig: