HomeFréttirLokaumferðin í Dominos deild kvenna - Stjarnan eða Skallar í úrslitakeppni?

Lokaumferðin í Dominos deild kvenna – Stjarnan eða Skallar í úrslitakeppni?

Deildarkeppni Dominos deildar kvenna lýkur í dag þegar lokaumferðin fer fram með fjórum leikjum. Nokkur spurningamerki eru um lokastöðuna fyrir daginn en margt orðið ljóst. 

 

Stærsta spurning dagsins er hvaða lið kemst í úrslitakeppnina en Stjarnan og Skallagrímur keppast um fjórða sætið. Skallagrímur er í betri stöðu fyrir daginn og þurfa að vinna sinn leik gegn deildarmeisturum Hauka. Stjarnan þarf hinsvegar að vinna sinn leik og vona að Skallagrímur tapi sínum leik til að hirða fjórða sætið. 

 

Einnig ræðst í dag hvaða lið fær heimaleikjarétt í undanúrslitaeinvígi Keflavíkur og Vals en liðin enda í 2. og 3. sæti deildarinnar. Keflavík þurfa að treysta á sjálfan sig en Valsarar þurfa sigur og vona að Keflavík tapi. 

 

Njarðvík mun þá spila sinn síðasta leik í efstu deild í bili þar sem liðið er fallið í 1. deild kvenna. Njarðvík fær nágranna sína í Keflavík í heimsókn. Í Stykkishólmi er keppt um sjötta sæti deildarinnar er Breiðablik mætir.

 

Í fyrstu deild kvenna getur KR tryggt sér í úrslitaeinvígið með því að vinna Grindavík og þar með sópa einvígi liðanna. Ljóst er að Fjölnir verður andstæðingurinn í úrslitaeinvíginu. 

 

 

Fjallað verður um leiki dagsins á Karfan.is í dag. 

 

Leikir dagsins: 

 

Dominos deild kvenna:

 

Haukar-Skallagrímur kl 16:30
Njarðvík-Keflavík kl 16:30
Snæfell – Breiðablik  kl 16:30
Stjarnan-Valur kl 16:30 (Í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport) 

 

1. deild kvenna: 

KR-Grindavík kl 16:30
Staðan í einvíginu er 2-0

Fréttir
- Auglýsing -