spot_img
HomeFréttirLokahóf KKÍ í Laugardalshöll

Lokahóf KKÍ í Laugardalshöll

Lokahóf KKÍ verður í veislusölum Laugardalshallarinnar laugardaginn 4. maí næstkomandi. Dagskrá og utanumhald verður með breyttu sniði í ár en ekki er um hefðbundinn 3-rétta kvöldverð eða sitjandi veislu að ræða.
 
Boðið verður upp á glæsilegt smáréttar hlaðborð og auk þess verður körfuboltaannáll keppnistímabilsins 2012-2013 gerður upp í máli og myndum.
 
Veislustjórar og umsjónarmenn körfuboltannálsins eru þeir Örvar Kristjánsson og [email protected].
 
Miðasalan er hafin á skrifstofu KKÍ og kostar miðinn aðeins 2.900. Takmarkað magn er af miðum og því um að gera að panta miða sem allra fyrst.
 
Hægt er að panta miðanna á [email protected] og greiða þarf miðana fyrir kl.16:00 fimmtudaginn 2.maí.
  
Fréttir
- Auglýsing -