Logi Gunnarsson og félagar í Solna Vikings eru lentir 1-0 undir gegn Norrköping Dolphins en Solna lá 91-84 á útivelli í fyrsta leik liðanna. Þegar fimm mínútur voru til leiksloka leiddi Solna 70-75 en heimamenn í Norrköping tóku sterkan lokasprett og unnu fjórða leikhluta 29-24.
Logi átti góðan leik fyrir Solna eða 17 stig, 9 fráköst og 4 stoðsendingar en Víkingarnir þurfa ekki að örvænta enda leika þeir á heimavelli í næstu viðureign og þrjá sigra þarf til að komast áfram í undanúrslit sænsku deildarinnar.





