HomeFréttirLogi með 24 stig í mikilvægum útisigri Solna

Logi með 24 stig í mikilvægum útisigri Solna

 
Solna Vikings gerðu góða ferð á sterkan útivöll í dag er þeir lögðu Norrköping Dolphins 92-97 í sænsku úrvalsdeildinni. Logi Gunnarsson fór mikinn í liði Solna með 24 stig en með sigrinum eru Solna Vikings komnir upp í 6. sæti deildarinnar með 10 stig.
Logi setti niður 5 af 9 þristum sínum í leiknum en auk þess að gera 24 stig tók hann 7 fráköst, gaf 4 stoðsendingar og stal 3 boltum á þeim 36 mínútum sem hann lék í leiknum.
 
Á morgun verður svo Helgi Magnússon í eldlínunni í Svíþjóð þegar hann ásamt félögum sínum í Uppsala Basket taka á móti Jamtland Basket. Uppsala er í 5. sæti deildarinnar en Jamtland í níunda og næstneðsta sæti með 4 stig.
 
Fréttir
- Auglýsing -