Spennan magnast í 1. deild karla en í gærkvöldi fóru fram tveir leikir þar sem FSu lagði Ármann og Valur fór með öruggan sigur af hólmi á Laugarvatni. Þrátt fyrir sigur FSu í gær er ljóst að liðið kemst ekki í úrslitakeppni 1. deildar þar sem Breiðablik er með tveimur stigum meira en FSu, á leik til góða og hefur betur innbyrðis nú þegar FSu á aðeins einn leik eftir í 1. deildinni. Það er því ljóst að Þór Akureyri, Valur, Skallagrímur og Breiðablik munu í ár berjast um laust sæti í Iceland Express deild karla en Þór Þorlákshöfn hefur þegar tryggt sig upp.
Ármann 81-84 FSu
Þrír Ármenningar gerðu 13 stig í leiknum en það voru þeir Daði Berg Grétarsson, Egill Vignisson og Steinar Aronsson en hjá FSu var Guðmundur Auðunn Gunnarsson með 18 stig og gamla brýnið Björgvin Jóhannesson sem skipti yfir í FSu frá Þór Akureyri á dögunum gerði 8 stig og tók 5 fráköst fyrir Selfyssinga.
Laugdælir 97-125 Valur
Sigurður Orri Hafþórsson og Bjarni Bjarnason gerðu báðir 27 stig í liði Laugdæla en Calvin Wooten var sjóðheitur hjá Valsmönnum með 38 stig.
Svona lítur þá deildin ú í dagt:
1. Þór Þorlákshöfn 32 – komnir í úrvalsdeild
_____________________________________
2. Skallagrímur – 22 – úrslitakeppni
3. Þór Akureyri – 22 – úrslitakeppni
4. Valur – 22 – úrslitakeppni
5. Breiðablik – 20 – úrslitakeppni
_____________________________________
6. FSu – 18
7. Höttur – 10
8. Laugdælir – 8
9. Leiknir – 6
10. Ármann – 4 – fallnir í 2. deild
Þá er einn leikur á dagskránni í 1. deild karla í kvöld þegar Þór Akureyri tekur á móti toppliði Þórs úr Þorlákshöfn norðan heiða kl. 19:15. Upp á deildina að gera skiptir leikurinn engu máli fyrir Þórsliðið úr Þorlákshöfn en fyrir norðanmenn er sigur mikilvægur enda Akureyringar í þeirri aðstöðu að berjast um heimaleikjarétt í úrslitakeppninni.
Mynd/ Torfi Magnússon: Wooten fór á kostum á Laugarvatni í Valsliðinu í gær.





