Þegar við kveðjum árið 2017 er gott að líta um öxl og minnast augnablikanna sem gæddu árið lífi. Sum þeirra eigum við í huganum en önnur eru til á ljósmyndum. Karfan.is hefur í gegnum árið verið svo lánsamt að frábærir ljósmyndarar hafa lagt okkur lið og myndað leiki og viðburði.
Myndir ársins 2017 hjá Karfan.is telja á þúsundum ef ekki meira og því ansi skemmtilegt að líta yfir farin veg. Hér að neðan má finna brota af þessum myndum sem þóttu eftirminnilegar á árinu 2016.

Sjaldgæfur atburður átti sér stað í haust þegar áhorfandi var rekinn úr húsi í leik Gnúpverja og Skallagríms. Áhorfandinn hafði mótmælt dómi harðlega.
Mynd / Ólafur Þór Jónsson

A-landslið kvenna hóf leik í undankeppni HM á haustmánuðum og fengu sterka þjóð Svartfjallalands í heimsókn.
Mynd / Þorsteinn Eyþórsson

Meistaraflokkur Keflavíkur átti ansi gjöfult ár 2017. Fyrsti titillinn kom snemma árs þegar liðið lyfti Maltbikarnum. Þjálfarar liðsins og Arianna Moorer féllust í faðma eftir að flautað var til leiksloka.
Mynd / Bára Dröfn

Breiðablik kom inní Dominos deild kvenna sem nýliðar í haust og unnu góðan sigur á Íslands-og bikarmeisturum Keflavíkur snemma á tímabilinu. Leikmenn fögnuðu sigrinum ákaft.
Mynd / Bjarni Antonsson

KR varð Íslandsmeistari fjórða árið í röð síðasta vor. Brynjar Þór Björnsson fyrirliði liðsins tók við bikarnum stóra og virtist dolfallinn.
Mynd / Davíð Eldur

Carmen Tyson-Thomas gekk til liðs við Skallagrím síðasta sumar. Hún fagnar hér sigri á Haukum með því að hnykla vöðvana fyrir ljósmyndara.
Mynd / Ómar Örn Ragnarsson

KR b mætti Breiðablik í Maltbikar karla fyrr í vetur. Fannar Ólafsson rifbeinsbrotnaði í leiknum og virtist vera ansi þjáður þegar þjálfarinn Pavel Ermolinksi aðstoðaði hann.
Mynd / Bjarni Antonsson.

U20 landslið karla komst alla leið í 8 liða úrslit A-deildar evrópumótsins í sumar. Finnur Freyr Stefánsson þjálfari liðsins fagnaði innilega eftir sigur á Svíþjóð í 16 liða úrslitum.
Mynd / Ólafur Þór Jónsson

Unglingaflokkur Hauka varð bikarmeistari eftir góðan sigur á Keflavík. Liðin hafa eldað saman grátt silfur í yngri flokkum síðustu ár og því fögnuðu Haukar ákaft.
Mynd / Ólafur Þór Jónsson

Íslenska landslið karla lék á lokamóti Eurobasket 2017 í Helsinki í september. Helstu tilþrif mótsins átti Haukur Helgi Pálsson þegar hann tróð yfir Georgios Printezis leikmann Olympiakos og gríska landsliðsins.
Mynd / Skúli B. Sigurðsson

Höttur varð Íslandsmeistari í 1. deild karla á árinu og tryggðu sér þar með þátttökurétt í Domios deild karla. Egilsstaðabúar fögnuðu vel eftir að titilinn var í höfn.
Mynd / Atli Berg Kárason

Hrafn Kristjánsson þjálfari Stjörnunnar fagnaði gríðarlega í leik liðsins gegn ÍR í 8 liða úrslitum Dominos deildar karla. Mynd þessi hlaut síðan enn meira líf þegar hún var sett í sögulegt samhengi.
Mynd / Bára Dröfn

ÍR stillti fram meistaraflokki kvenna í fyrsta sinn i mörg ár fyrir þetta tímabil. Liðið náði í fjóra sigra á tímabilinu en fyrsti sigurinn kom gegn Ármanni og var honum fagnað vel.
Mynd / Bára Dröfn

Keflavík varð Íslandsmeistari eftir úrslita einvígi gegn Snæfell. Hið unga lið kom öllum á óvart og vann þann stóra þetta árið og gátu fagnað því vel.
Mynd / Davíð Eldur

STAÐAN? – Ólafur Ólafsson varð skot Péturs Rúnars Birgissonar með þvílíkum tilþrifum í leik Grindavíkur og Tindastóls.
Mynd / Benóný Þórhallsson

Sæþór Elmar Kristjánsson leikmaður ÍR var hetja liðsins í góðum sigri á Keflavík en liðin mættust í síðustu umferð Dominos deildar karla á árinu 2017. Stuðningsmenn ÍR Ghetto Hooligans fögnuðu sínum manni vel og innilega.
Mynd / Bára Dröfn

Unginn kennir hænunni – Sæþór Elmar dregur hinn reynslu mikla Sveinbjörn Claessen frá dómaranum sem hann er að gera sig líklegan til að ræða vel við.
Mynd / Bára Dröfn

Skallagrímur og Keflavík mættust í undanúrslitaeinvígi Dominos deildar kvenna. Einvígið fór alla leið í oddaleik en hart var barist.
Mynd / Ómar Örn Ragnarsson

Skallagrímur fór í úrslit Maltbikarsins í fyrsta sinn eftir ótrúlegan sigur á Snæfell í undanúrslitunum. Sigrún Sjöfn tryggði sigurinn var ævintýralegri körfu í blálok leiksins. Hún og systir hennar fögnuðu með föður sínum og formanni meistaraflokksráðs Skallagríms Ámunda Sigurðssyni.
Mynd / Þorsteinn Eyþórsson

Dani Rodriquez leikmaður Stjörnunnar setti úrslitakörfuna í sigri á Haukum í Dominos deild kvenna á árinu. Fögnuður Stjörnunnar var ósvikinn.
Mynd / Bára Dröfn

ÍR og Keflavík mættust í háspennuleik í síðasta leik síðasta tímabils þar sem ÍR vann í framlengingu. Leikmennirnir Trausti Eiríksson og Hörður Axel Vilhjálmsson áttu heldur náin samskipti í leiknum.
Mynd / Bára Dröfn

Valur lék í undanúrslitum Maltbikarsins í ár gegn nágrönnum sínum í KR. Urald King tróð boltanum með miklum tilþrifum í leiknum.
Mynd / Ólafur Þór Jónsson

Vestri vann sinn fyrsta titil í 50 ár þegar liðið varð Maltbikarmeistari í 9. flokki drengja. Liðið fagnaði gríðarlega mikið og vel.
Mynd / Ólafur Þór Jónsson

Stuðningsmenn Íslands slógu að vanda í gegn á lokamóti Eurobasket 2018. Liðið tók hið þekkta víkingaklapp. Fremstur meðal jafningja í skaranum er Ólafur Ólafsson sem féll úr landsliðshópnum rétt fyrir mótið en lét það ekki aftra sér við að styðja sína menn áfram.
Mynd / Skúli B. Sigurðsson




