spot_img
HomeFréttirLiðsstyrkur til Hamars í Iceland Express-deildinni

Liðsstyrkur til Hamars í Iceland Express-deildinni

22:12

{mosimage}
(Roni í leik með Haukum gegn Hamri á síðasta vetri)

Roni Leimu er genginn til liðs við Hamar í Iceland Express-deild karla og verður hann löglegur með liðinu í næsta leik. Roni sem er finnskur bakvörður lék með Haukum á síðasta vetri í Iceland Express-deild karla við góðan orðstír. Roni var í 16-manna æfingarhóp finnska landsliðsins síðastliðið sumar.

Roni hefur æft með Hamar undanfarnar tvær vikur en gat ekki leikið með liðinu fyrr þar sem hann átti í útistöðum við liðið sem hann var samningsbundinn í Finnlandi. Nú er hann laus allra mála.

Roni er 25 ára gamall og lék 20 leiki með Haukum í Iceland Express-deildinni og skoraði þeim 19.6 stig í leik, hann lék um Tarmo í heimalandinu og var m.a. valinn nýliði ársins þegar hann lék með liðinu.

Fyrsti leikur Roni verður væntanlega gegn KR þann 2. desember.

mynd: [email protected]

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -