HomeFréttirLést í bílslysi

Lést í bílslysi

Ísraelski körfuknattleiksmaðurinn Raz Adam er látinn, aðeins tuttugu og fimm ára að aldri. Hann lést af völdum áverka sem hann hlaut í alvarlegu bílslysi í gærkvöldi. Adam var ein skærasta vonarstjarna ísraelsks körfubolta og átti farsælan feril með yngri landsliðum þjóðarinnar.

Andlát hans hefur vakið mikla sorg í íþróttaheiminum en margir minnast hans sem mikils hæfileikamanns og góðs félaga. Hann var lykilmaður í liði Ísraels sem tryggði sér Evrópumeistaratitilinn skipað leikmönnum tuttugu ára og yngri tvö ár í röð, árin 2018 og 2019.

Fréttir
- Auglýsing -