Það var heldur betur tíðindamikið gærkvöldið í NBA deildinni. Átta leikir fóru fram og mikið um tilþrif.
Stórleikur kvöldsins var þegar San Antonio Spurs tók á móti einu heitasta liði deildarinnar um þessar mundir, Boston Celtics. Leikurinn var hníf jafn og réðst á lokasóknum leiksins. Það var hinn fertugi Manu Ginobili sem skoraði sigurkörfuna þegar um fimm sekúndur voru eftir af leiknum. Síðustu sóknir leiksins og loka sókn Spurs má finna hér að neðan.
Sigurhrinu Cleveland Cavaliers lauk einnig í gær þegar Victor Oladipo og félagar í Indiana Pacers unnu sigur á þeim. Oladipo fór fyrir sínu liði og endaði með 33 stig.
Öll úrslit kvöldsins og tölfræði má finna hér. Að neðan eru svo helstu tilþrif kvöldsins




