Því miður skolaðist aðeins til að koma á framfæri umfjöllun frá leik FSu og Hattar um síðustu helgi í 1. deild karla. Við birtum nú umfjöllun frá leiknum eftir þá Stefán Böðvarsson og Gylfa Þorkelsson.
Höttur frá Egilsstöðum gerði góða fer „suður í Flóa“ og nældi sér í mikilvæg stig í baráttunni í 1. deild karla. Sigurinn gegn FSu var öruggur, eins og lokatölurnar, 80-100, bera glöggt vitni.
Þó að FSu tækist um miðbik fyrsta fjórðungs að koma stöðunni sér í hag, 10:8, náðu liðsmenn Hattar undirtökunum og leiddu með 9 stigum við lok leikhlutans, 17:26.
Í 2. leikhluta virtist eins og þetta ætlaði að snúast upp í leik „Hattarins“ að músinni og stefndi í hálfleikstölur á borð við 25:50, en FSu drengjunum tókst aðeins að klóra í bakkann á síðustu 2-3 mínútunum og staðan 32:47 í hálfleik.
Í 3. leikhluta bættu liðsmenn Hattar enn í og náðu mest 26 stiga mun, en leikhlutanum lauk 48:70.
Megnið af fjórða leikhluta var 24-27 stiga forskot Hattarmanna á stigatöflunni og einkenndist leikurinn af langskotum beggja liða en minna um spil inni í teig og leikkerfi. FSu drengirnir sóttu þó aðeins í sig veðrið og lauk leiknum með 20 stiga sigri Hattar, 80:100.
Stigahæstir hjá Hetti voru útlendingarnir þrír, með samtals 51 stig, en hjá FSu voru það Guðmundur Gunnarsson (24), Sæmundur Valdimarsson (18) og Valur Orri Valsson (18) sem allir skörtuðu sínu ástkæra ylhýra með sóma.
Stefán Böðvarsson/Gylfi Þorkelsson
Mynd/ Viggó og Hattarmenn sóttu tvö dýrmæt stig á Selfoss um síðustu helgi.





