HomeBónus deildinBónus deild kvennaLeikjahæst í sögu félagsins

Leikjahæst í sögu félagsins

KR heiðraði Perlu Jóhannsdóttur í gærkvöldi en hún er orðin leikjahæsti leikmaður í sögu meistaraflokks kvenna hjá félaginu.

Perla hóf sitt sextánda tímabil í meistaraflokki með Vesturbæjarliðinu í opnunarleik Bónus deildarinnar og lék þar sinn 361. meistaraflokksleik fyrir uppeldisfélag sitt.  

Perla, sem fagnar þrítugsafmæli sínu í næsta mánuði, lék sinn allra fyrsta leik með meistaraflokki KR árið 2012, þá aðeins 15 ára gömul, og hefur verið félaginu trú allan sinn feril. Í tilkynningu frá KR er henni lýst sem frábærri fyrirmynd, leiðtoga og leikmanni með risastórt KR-hjarta sem hefur staðið þétt með félaginu í gegnum súrt og sætt.

Fréttir
- Auglýsing -