HomeFréttirLeikir kvöldsins: Tíunda umferð hefst í kvöld

Leikir kvöldsins: Tíunda umferð hefst í kvöld

 
Í kvöld fara fram þrír leikir í Iceland Express deild karla þegar tíunda umferð deildarinnar rúllar af stað. Allir leikirnir hefjast kl. 19:15 þar sem stórslagur Snæfells og Njarðvíkur verður í beinni netútsendingu á www.sporttv.is  
Njarðvíkingar sitja einir á toppi deildarinnar með 16 stig en Snæfell er í 5. sæti með 12 stig. Hólmarar hafa unnið síðustu þrjá heimaleiki sína en Njarðvíkingar voru að komast á réttu brautina í síðustu umferð með sigri á Keflavík eftir að hafa tapað gegn Stjörnunni í þarsíðustu umferð.
 
Íslandsmeistarar KR mæta í Toyota-Höllina í Keflavík í kvöld. Von er á miklum slag þar sem bæði lið máttu þola tap í síðasta leik, KR gegn Stjörnunni og Keflavík gegn Njarðvík. Keflavík og KR eru jöfn að stigum ásamt Stjörnunni, öll lið með 14 stig svo ljóst er að leiðir skiljast að sinni á milli KR og Keflavíkur eftir kvöldið.
 
Í Grafarvogi taka nýliðar Fjölnis svo á móti Breiðablik en bæði lið lágu á útivelli í síðustu umferð. Fjölnir gegn ÍR og Breiðablik gegn Hamri.
 
Einn leikur fer svo fram í 1. deild kvenan í kvöld kl. 19:15 en þá tekur Skallagrímur á móti Grindavík b.
 
Þá eru einnig bikarleikir í yngri flokkum en yfirlit yfir þá má sjá hér.
 
Fréttir
- Auglýsing -