Heil umferð fer fram í Iceland Express deild kvenna í kvöld og hefjast allir leikirnir kl. 19:15. Stórleikur kvöldsins er viðureign KR og Grindavíkur sem fram fer í DHL-Höllinni en bæði lið eru sjóðheit um þessar mundir. KR hefur unnið alla níu deildarleiki sína á tímabilinu en Grindvíkingar hafa unnið fjóra deildarleiki í röð.
Í Hveragerði mætast Hamar og nýliðar Njarðvíkur en síðast þegar liðin áttust við komu nýliðarnir nokkuð á óvart og lögðu Hamar að velli. Snæfell fær Íslandsmeistara Hauka í Hólminn og Keflavík tekur á móti Val í Toyota-Höllinni en Valskonur hafa spilað tvo síðustu leiki án erlends leikmanns þar sem félagið lét Sakeru Young fara á dögunum.