HomeFréttirLeikir dagsins: Úrslitakeppnin í Iceland Express deild karla hefst í kvöld!

Leikir dagsins: Úrslitakeppnin í Iceland Express deild karla hefst í kvöld!

 
Úrslitakeppnin í Iceland Express deild karla hefst í kvöld með tveimur leikjum þegar KR tekur á móti Njarðvík í DHL-Höllinni og Grindavík fær Stjörnuna í heimsókn í Röstina í Grindavík. Viðureignir Snæfells og Hauka og svo Keflavíkur og ÍR hefjast svo annað kvöld.
Leikir kvöldsins:
 
19:15 KR-Njarðvík
19:15 Grindavík-Stjarnan
 
KR og Njarðvík eru nú síðan 1984, þegar úrslitakeppnin fór af stað, að mætast í sínu ellefta einvígi í úrslitakeppninni og má lesa nánar um rimmur þessara klúbba í góðri grein á heimasíðu þeirra Njarðvíkinga. Grindavík og Stjarnan eru hinsvegar að mætast í fyrsta sinn í úrslitakeppni deildarinnar og skrifa þar með nýjan kafla í sinni sögu.
Fréttir
- Auglýsing -