Í kvöld hefst sautjánda umferðin í Iceland Express deild karla og er boðið upp á toppslag í Röstinni í Grindavík þegar meistarar Snæfells mæta í heimsókn. Hólmarar hafa 26 stig á toppi deildarinnar en Grindavík er í 2.-3. sæti ásamt KR með 24 stig og geta með sigri í kvöld jafnað Snæfell á toppnum.
Leikir kvöldsins í IEX karla, allir kl. 19:15:
Grindavík-Snæfell
Keflavík-Fjölnir
KFÍ-Hamar
Grindavík-Snæfell
Snæfell er enn ósigrað á heimavelli í deildinni sem og KR en Snæfell hefur tapað síðustu tveimur útileikjum í deildinni og hafa fundið vel fyrir fjarveru miðherjans Ryans Amoroso. Nýr leikmaður kom í Hólminn á dögunum, Zeljko Bojovic, sem að öllum líkindum verður með Snæfell í kvöld. Hólmarar eru ekki einir um ferskt blóð því heimamenn í Grindavík, sem tapað hafa síðustu tveimur deildarleikjum, eru einnig að bæta við sig leikmanni að nafni Mladen Sokic og vonaðist Helgi Jónas Guðfinnsson til þess að hann gæti verið í leikmannahópi Grindavíkur í kvöld en leikmaðurinn var ekki kominn til landsins í gær. Toppslagur hér á ferðinni og ljóst að ekkert verður gefið eftir.
Keflavík-Fjölnir
Keflvíkingar fengu þungan skell í síðustu umferð gegn KR og hafa síðan þá bætt við sig erlendum leikmanni að nafni Adrija Ciric. Fjölnismanna bíður ærið verkefni enda hafa Keflvíkingar unnið síðustu sex heimaleiki sína í röð á meðan Fjölnismenn hafa tapað síðustu tveimur leikjum í deildinni og eru með 10 stig í fallsæti rétt eins og Hamar en á botninum er KFÍ með 6 stig.
KFÍ-Hamar
Blóðug botnbaráttan mun vísast gefa af sér hörkuleik í Jakanum í kvöld. Bæði Hamar og KFÍ eru á kunnuglegum slóðum, 1. deildin er að banka og nú fer hver að verða síðastur til að ná sér í stig. Ísfirðingar unnu síðasta heimaleik þegar topplið Snæfells kom í heimsókn en Hamar er statt í verstu taphrinu deildarinnar í augnablikinu þar sem liðið hefur tapað síðustu átta deildarleikjum sínum.
Þá fer fram einn leikur í 1. deild karla í kvöld þegar Þór Akureyri tekur á móti Ármanni kl. 19:15 í Höllinni á Akureyri. Þór hefur 20 stig í 2. sæti deildarinnar en Ármann er á botninum og þarf heldur betur á stigunum að halda til að forðast fall í 2. deild á næstu leiktíð.
Mynd/ Pálmi og Snæfell mæta í Röstina í kvöld í toppslag umferðarinnar.





