spot_img
HomeFréttirLeikir dagsins: Undir 16 ára lið Íslands leika gegn heimamönnum í Finnlandi

Leikir dagsins: Undir 16 ára lið Íslands leika gegn heimamönnum í Finnlandi

Undir 16 ára lið stúlkna og drengja leika bæði í dag gegn heimamönnum í Finnlandi. Stúlkurnar hefja leik kl. 12:15 að íslenskum tíma á meðan að strákarnir eiga leik beint á eftir kl. 15:00.

Bæði töpuðu liðin leikjum gærdagsins nokkuð naumlega og verður því áhugavert að sjá hvort þau mæti ekki með smá blóð á tönnunum í þessa leiki gegn sterkum liðum Finnlands.

Hérna er 12 manna landslið undir 16 ára stúlkna

Hérna er 12 manna landslið undir 16 ára drengja

Allir leikir mótsins verða í beinni tölfræðilýsingu, útsendingu og þá verða fluttar fréttir af þeim hér á Körfunni.

Hérna er skipulag Íslands á mótinu

Tölfræðilýsingarnar og fréttirnar af Körfunni verða að sjálfsögðu fríar, en fyrir beinar útsendingar þarf að greiða. Það er fyrirtækið Solid Sport sem sér um útsendingarnar og hægt er að kaupa allt mótið fyrir 2931 kr. (19.9 EUR) og staka leiki fyrir 1016 kr (6.9 EUR)

Hérna er hægt að kaupa aðgang að beinum útsendingum

Hérna verða beinar tölfræðilýsingar undir 16 ára drengja

Hérna verða beinar tölfræðilýsingar undir 16 ára stúlkna

Fréttir
- Auglýsing -