HomeFréttirLeikir dagsins: Snæfell og Keflavík fá góða gesti og úrslitin hefjast í...

Leikir dagsins: Snæfell og Keflavík fá góða gesti og úrslitin hefjast í 1. deild

 
Þrír stórleikir eru á dagskránni í kvöld þegar 8-liða úrslitin í Iceland Express deild karla halda áfram og þá hefst einnig úrslitaeinvígið í 1. deild karla þar sem eigast við Þór Akureyri og Valur. Í gærkvöldi voru það KR og Grindavík sem tóku 1-0 forystu í sínum rimmum á heimavelli en fara svo á útivöll á sunnudag þar sem þau geta tryggt sér farseðilinn í undanúrslit. 
Leikir kvöldsins í 8-liða úrslitum IEX deildar karla:
 
19:15 Snæfell – Haukar
19:15 Keflavík – ÍR
 
19:15 Þór Akureyri – Valur
Fyrsti leikur liðanna í úrslitum 1. deildar karla í baráttunni um laust sæti í Iceland Express deildinni. Þór lagði Breiðablik á leið sinni í úrslit og Valur lagði Skallagrím. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki í þessari rimmu fer upp í Iceland Express deildina á næstu leiktíð ásamt Þór úr Þorlákshöfn.
Fréttir
- Auglýsing -