HomeFréttirLeikir dagsins: Kemst Hamar í Jakann í kvöld?

Leikir dagsins: Kemst Hamar í Jakann í kvöld?

 
Taka þrjú hjá Hamri í kvöld, í tvígang hefur viðureign liðsins við KFÍ í Iceland Express deildinni verið frestað sökum þess að ekki var flogið vestur. Í dag er því þriðja tilraun í gangi en leikurinn verður til þess að öll lið deildarinnar verði búin með 18 leiki og eftir kvöldið verða aðeins 8 stig eftir í pottinum.
Fyrir leikinn í kvöld er KFÍ á botni deildarinnar með 6 stig en Hamar er í 10. sæti með 12 stig. Nerijus Taraskus verður ekki með Hamri í kvöld en hann hefur sagt skilið við klúbbinn sem reyndar fékk nýjan liðsmann á dögunum þegar Lárus Jónsson skipti úr Njarðvík í Hamar.
 
Þá eru tveir leikir á dagskránni í 1. deild karla þegar FSu tekur á móti Val í Iðu og Þór Þorlákshöfn fær Breiðablik í heimsókn. Báðir leikir hefjast kl. 19:15 og má búast við miklum rimmum.
 
Kl. 19:30 mætast Tindastóll og Grindavík í bikarkeppni 9. flokks drengja og kl. 20:30 mætast Haukar og Njarðvík í drengjaflokki í bikarnum að Ásvöllum.
Fréttir
- Auglýsing -