spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2021Leikir dagsins: Ísland hefur leik í undankeppni Eurobasket - Dominos býður á...

Leikir dagsins: Ísland hefur leik í undankeppni Eurobasket – Dominos býður á völlinn

Í kvöld er komið að fyrsta leik landsliðs kvenna í undankeppni EM, EuroBasket Women 2021, en í kvöld mætir liðið Búlgaríu í Laugardalshöllinni kl. 20:00. Seinni leikurinn í þessum landsliðsglugga verður svo á sunnudaginn í Grikklandi.

Domino’s, aðalstyrktaraðili KKÍ, ætlar að bjóða landsmönnum frítt á leikinn í kvöld og einnig upp á flatbökur milil kl. 19:00 og 19:30 í Höllinni.

Í hópnum í kvöld er einn nýliði, Lovísa Björt Henningsdóttir frá Haukum, sem leikur sinn fyrsta landsleik að auki í keppni á vegum FIBA. Karfan ræddi við Lovísu um leikina sem framundan eru á dögunum og má finna viðtalið hér.

Leikskráin fyrir kvöldið er mætt og má finna hér.

Fréttir
- Auglýsing -