Þrír leikir eru á dagskránni í kvöld og má auðveldlega stilla þeim þannig upp að um baráttu höfuðborgarsvæðisins gegn Suðurnesjum sé að ræða. Allir þrír leikirnir hefjast kl. 19:15 og fara fram á stór-Reykjavíkursvæðinu.
Fjölnir-Njarðvík
Stjarnan-Grindavík
Haukar-Keflavík
Þrír leikir fóru fram í gær þar sem Hamar, KR og Snæfell lönduðu sigri og sem fyrr eru það meistarar Snæfells sem tróna á toppi deildarinnar, nú með 30 stig.





