Poweradebikarkeppnin í er eldlínunni í dag og boðið verður m.a. upp á tvíhöfða í Dalhúsum í Grafarvogi. Um er að ræða þrjá leiki í Poweradbikarkeppni karla og einn í kvennaflokki en allt eru þetta leikir í 8-liða úrslitum. Fjörið hefst í Grafarvogi kl. 17:00 þar sem Fjölniskonur taka á móti Snæfell.
Leikir dagsins í bikarkeppninni:
17:00 Fjölnir-Snæfell (kvk)
19:15 Tindastóll-Njarðvík
19:15 Fjölnir-Keflavík
19:15 KFÍ-Hamar
Í dag eru einnig þrír leikir á dagskránni í 2. deild karla og þrír leikir í B-liða keppni karla en heildaryfirlit fyrir alla leiki dagsins má nálgast hér.



