HomeFréttirLeikir dagsins: Allt á suðupunkti

Leikir dagsins: Allt á suðupunkti

 
Eitt allsherjar uppgjör verður á boðstólunum í kvöld þegar þrír oddaleikir í Iceland Express deild karla og einn í 1. deild karla fara fram. Allir hefjast þeir kl. 19:15 og ljóst að þrjú lið í úrvalsdeildinni eru á leið í sumarfrí og önnur þrjú á leið inn í undanúrslit ásamt KR sem urðu fyrstir til þess að tryggja sig þangað inn með 2-0 sigri á Njarðvíkingum. Þá ræðst það fyrir norðan hvort Þór Akureyri eða Valur leiki í úrvalsdeild á næstu leiktíð.
Leikir kvöldsins, allir kl. 19:15:
 
Grindavík-Stjarnan
Keflavík-ÍR
Snæfell-Haukar
 
1. deild karla
Þór Akureyri-Valur
 
Grindavík 1 – 1 Stjarnan
Grindavík vann fyrsta leikinn í Röstinni 90-83 en Stjarnan jafnaði metin í Ásgarði með 91-74 sigri í öðrum leiknum.
 
Keflavík 1 – 1 ÍR
Keflavík hefur unnið 10 heimaleiki í röð, ÍR hefur unnið 6. Keflavík vann fyrsta leikinn sannfærandi 115-93 en í öðrum leiknum snérist taflið við og ÍR vann 106-89.
 
Snæfell 1 – 1 Haukar
Snæfell vann fyrsta leikinn 76-67 en Haukar jöfnuðu einvígið að Ásvöllum með 77-67 sigri í öðrum leiknum.
 
Þór Akureyri 1 – 1 Valur
Þessi tvö lið hafa aðeins unnið hvort annað í vetur á útivelli! Í úrslitum 1. deildar vann Valur fyrsta leikinn fyrir norðan 82-91 en Þórsarar komu svo í Vodafonehöllina og jöfnuðu einvígið 1-1 með 73-76 sigri í öðrum leiknum.
 
Það er verið að bjóða til veislu. Fjölmennum á völlinn!
 
Fréttir
- Auglýsing -