spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaLeikdagar undanúrslita Subway deildar kvenna og innbyrðisviðureignir tímabilsins – Nær Njarðvík að...

Leikdagar undanúrslita Subway deildar kvenna og innbyrðisviðureignir tímabilsins – Nær Njarðvík að verja titilinn?

Subway deild kvenna lauk í gærkvöldi með því að Keflavík voru krýndar deildarmeistarar, en þær enduðu með 48 stig í efsta sætinu, 4 stigum á undan Haukum í öðru sæti og Val í þriðja sæti. Öllu neðar í fjórða sætinu voru svo Íslandsmeistarar Njarðvíkur með 36 stig.

Úrslitakeppni deildarinnar hefst komandi mánudag 3. apríl, en þá mun Keflavík taka á móti Njarðvík í Blue Höllinni og Haukar taka á móti Val í Ólafssal. Vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sig í úrslitaeinvígið.

Keflavík 3 – 1 Njarðvík / Hérna er hægt að skoða leikina

Keflavík og Njarðvík mættust í fjögur skipti í Subway deildinni í vetur og hafði Keflavík sigur í þrjú skipti á móti einum sigurleik Njarðvíkur. Keflavík vann með 23 stigum um miðjan september, 7 stigum í byrjun nóvember, 11 stigum í byrjun janúar og Njarðvík vinnur svo með 1 stigi nú um miðjan mars.

Haukar 3 -1 Valur / Hérna er hægt að skoða leikina

Haukar og Valur mættust einnig í fjögur skipti í deildinni í vetur og höfðu Haukar þrjá sigra gegn einum Vals. Haukar vinna með 15 stigum í lok september og 13 stigum í byrjun nóvember. Valur vinnur svo með 10 stigum um miðjan janúar áður en Haukar vinna lokaleik liðanna á tímabilinu nú í byrjun mars með 14 stigum.

Leikdagar undanúrslita:

Keflavík (1) gegn Njarðvík (1)

03.04 – Keflavík

06.04 – Njarðvík

09.04 – Keflavík

09.04 – Njarðvík (ef þarf)

13.04 – Keflavík (ef þarf)

Haukar (2) gegn Val (3)

03.04 – Hafnarfjörður

06.04 – Reykjavík

09.04 – Hafnarfjörður

13.04 – Reykjavík (ef þarf)

14.04 – Hafnarfjörður (ef þarf)

Fréttir
- Auglýsing -