HomeNeðri deildirBæjarins Beztu deild karlaHeil umferð í Bæjarins Beztu deild karla í kvöld

Heil umferð í Bæjarins Beztu deild karla í kvöld

Heil umferð, alls sex leikir, er á dagskrá í sjöundu umferð Bæjarins Beztu deild karla í dag þar sem toppslagir eru á boðstólum.  

Spennandi viðureign fer fram í Garðabæ klukkan 19:30 þegar topplið Hauka sækir KFG heim. Haukar sitja einir á toppi deildarinnar með fullt hús stiga, tólf stig eftir sex umferðir, á meðan KFG er í fjórða sæti með átta stig og getur með sigri hleypt enn meiri spennu í toppbaráttuna.  

Skagamenn, sem sitja í öðru sæti deildarinnar með tíu stig, taka á móti Fjölni á heimavelli klukkan 19:15. Á sama tíma leikur Þór Þorlákshöfn, sem er jafnt ÍA að stigum í þriðja sæti, á útivelli gegn Snæfelli í Stykkishólmi.  

Þá eigast við Selfoss og Breiðablik á Selfossi, KV fær Þór Akureyri í heimsókn í Vesturbæinn og botnlið Skallagríms, sem er enn án stiga á botninum, tekur á móti Hamri í Borgarnesi. Allir hefjast þeir leikir klukkan 19:15.  

Leikir dagsins í 1. deild karla:

ÍA – Fjölnir kl. 19:15

KV – Þór Ak. kl. 19:15

Selfoss – Breiðablik kl. 19:15

Skallagrímur – Hamar kl. 19:15

Snæfell – Þór Þ. kl. 19:15

KFG – Haukar kl. 19:30

Fréttir
- Auglýsing -