spot_img
HomeFréttirLeikdagar Íslands í seinni hluta undankeppni HM 2023 - Besta lið Evrópu...

Leikdagar Íslands í seinni hluta undankeppni HM 2023 – Besta lið Evrópu á leiðinni til Íslands í febrúar

Ísland tryggði sig áfram í seinni hluta undankeppni HM 2023 á dögunum, með þrjá sigra og eitt tap úr fyrri hlutanum. Ásamt Íslandi fóru Ítalía og Holland áfram í næsta riðil L, þar sem að liðin munu keppast gegn Spáni, Georgíu og Úkraínu um þrjú laus sæti á lokamóti keppninnar sem fram fer haustið 2023.

Hérna er heimasíða mótsins

Hér fyrir neðan má sjá stöðuna í þessum sameinaða riðil:

Ísland er þar jafnt Ítalíu og Spáni að stigum í 1.-3. sæti riðilsins, en vegna innbyrðisstöðu er liðið í 2. sætinu. Næstu gluggar eru nú í ágúst og nóvember 2022 og febrúar 2023, þar sem leikið verður heima og heiman gegn þeim liðum sem Ísland hefur ekki leikið við til þessa, Georgíu, Spáni og Úkraínu.

Gluggi 1:

24.08.22 – Spánn Ísland

27.08.22 – Ísland Úkraína

Gluggi 2:

11.11.22 – Ísland Georgía

14.11.22 – Úkraína Ísland

Gluggi 3:

23.02.23 – Ísland Spánn

26.02.23 – Georgía Ísland

Hér fyrir neðan má sjá stöðu liða riðilsins á Evrópulista FIBA:

#1: Spánn

#7: Ítalía

#16: Úkraína

#18: Georgía

#22: Ísland

#25: Holland

Fréttir
- Auglýsing -