spot_img
HomeFréttirLauflétt hjá meisturunum í fyrsta leik

Lauflétt hjá meisturunum í fyrsta leik

 

Grindvíkingar mættu kokhraustir í DHL Höllina í kvöld eftir að hafa sópað Stjörnumönnum í sumarfrí sannfærandi í síðustu umferð, KR-ingar hins vegar voru búnir að eiga harða viðureign við sterka Keflvíkinga. Skemmst er frá því að segja að KR voru talsvert betri í kvöld og unnu öruggan sigur 98 – 65. PJ Alawoya var stigahæstur Vesturbæinga í kvöld með 22 stig og frábæra nýtingu, hjá Grindvíkingum var Dagur Kár Jónsson atkvæðamestur með 17 stig.

 

 

Gangur leiksins

 

Það var jafnt á öllum tölum í 1. leikhluta og Grindvíkingar voru duglegir að skjóta boltanum fyrir utan þriggja stiga línuna með ágætum árangri, hinum megin spiluðu KR-ingar vagg og veltu sem skilaði aragrúa af opnum sniðskotum fyrstu 5 mínúturnar. Grindvíkingar voru svo skrefinu á undan og luku fyrsta leikhluta með þriggja stiga forystu. 23-20.
 

Í 2. leikhluta tóku KR-ingar frumkvæðið, vörnin fór að bíta betur og það tók Grindvíkinga næstum 4 mínútur að ná að skora. Áfram voru Grindvíkingar í vandræðum með boltahindranir KR-inga og PJ Alawoya naut þess vel og setti öll sín skot, enda galopinn. Pavel Ermolinski var mjög góður í 2. Leikhluta, stjórnaði leik sinna manna vel og setti góðar körfur að auki. 48-35 í hálfleik.

 

Í 3. Leikhluta kláruðu KR svo leikinn, Brynjar var duglegur að setja þriggja stiga skot og Pavel að finna félaga sína undir körfunni. Stórir menn KR-inga voru líka í fínum gír og klikkuðu varla úr skoti í leikhlutanum. Munurinn að leikhlutanum loknum 22 stig og erfitt fyrir Grindvíkinga. Kristófer Acox var frábær í þessum leikhluta, spilaði hörkuvörn og var illviðráðanlegur í hindrunum sínum. Undirritaður hefur aldrei séð neinn á Íslandi gefa eins góðar hindranir og Kristófer gerir.

 

4. leikhluti var bara formsatriði fyrir alla leikmenn leiksins, KR voru betri á öllum sviðum og allt loft var farið úr gestunum svo að ruslatíminn byrjaði snemma. Lokatölur 98-65.

 

 

Tölfræðin lýgur ekki

Allir tölfræðiþættir leiksins sína yfirburði KR-inga í dag. Vesturbæingar tóku fleiri fráköst, (58-45) gáfu fleiri stoðsendingar (33-15) og skutu boltanum mikið betur. KR skoraði úr 50% af sínum skotum og settu 33% þriggja stiga skota sinna. Grindvíkingar hins vegar skutu 28% og líka 28% í þriggja stiga skotum. Það er afskaplega erfitt að vinna leiki þegar að hitt liðið er með svona mikið betri nýtingu.

 

Atvikið

Brynjar Þór Björnsson átti fínan leik fyrir KR og slökkti í vonum Grindvíkinga með góðum körfum í 3. og 4. leikhluta. Hann hins vegar sýndi ekki fallegu hliðarnar þegar hann keyrði með olnbogann á undan sér inn í hindrun sem Ólafur Ólafsson setti. Skellti olnboganum í hálsinn á Ólafi og lét eins og ekkert væri. Ljótt atvik og við fyrstu sýn er þetta ekki óviljaverk, en dæmi nú hver fyrir sig:

 

 

Maður leiksins

Það er ekki auðvelt að velja mann leiksins, Darri Hilmarsson og Brynjar áttu báðir fínan leik, PJ Alawoya og Kristófer Acox voru illviðráðanlegir undir körfunni og Jón Arnór var öruggur í öllum sínum aðgerðum. Ég ætla að velja Pavel Ermolinski sem mann leiksins, hann gjörsamlega stjórnaði leiknum og leit út eins og sirkusstjóri á löngum köflum með alla þræði leiksins í sinni hendi. Hann gældi við þrennuna með 8 stigum, 11 stoðsendingum og 12 fráköstum. Hann bætti svo við 4 stolnum boltum og var öflugur í vörninni, frábær leikur hjá Pavel.

 

Næstu skref

Grindvíkingar verða að finna svör við sterkri vörn KR-inga ásamt því að stöðva KR-inga í boltahindranakerfunum sínum, reynslumestu leikmenn liðsins verða að spila betur heldur en í dag og stóru strákarnir mega ekki lenda í villuvandræðum strax. KR-ingar þurfa hins vegar bara að gera meira að því sama, góð vörn og góð boltahreyfing er uppskriftin sem þeir vilja fara eftir.

 

 

Tölfræði leiksins

Myndasafn úr leiknum

 

Umfjöllun Sigurður Orri Kristjánsson

Myndir Bára Dröfn

Fréttir
- Auglýsing -