spot_img
HomeFréttirLárus segir Jordan Semple hafa verið beittan ofbeldi í síðasta leik gegn...

Lárus segir Jordan Semple hafa verið beittan ofbeldi í síðasta leik gegn Val “Sá aðili komst bara upp með það”

Íslandsmeistarar Vals lögðu Þór í Þorlákshöfn í kvöld í fjórða leik undanúrslitaeinvígis liðanna, 94-103. Fyrstu tvo leiki einvígis liðanna vann Þór áður en Valur minnkaði muninn með öruggum sigri í Origo Höllinni nú fyrir helgina og jöfnuðu svo einvígið með sigri í kvöld. Það mun því verða oddaleikur sem sker úr um hvort liðið fer í úrslitaeinvígið gegn Tindastól, en hann fer fram komandi þriðjudag 2. maí.

Tölfræði leiks

Karfan spjallaði við Lárus Jónsson þjálfara Þórs eftir leik í Þorlákshöfn. Lárus fer undir lok viðtalsins inn á ástand Jordan Semple, sem gat lítið beitt sér í leiknum eftir að hafa meiðst í byrjun þess seinasta. Segir hann að Jordan hafi verið beittur ofbeldi og að aðilinn sem beitti því, Kristófer Acox, hafi komist upp með það, en ekkert var aðhafst í brotinu með tilliti til banns eftir leik.

Fréttir
- Auglýsing -