Í kvöld fóru fram fjórir leikir í 21. umferð Dominos deildar karla. Í Hellinum sigruðu heimamenn í ÍR lið Hauka og komu þar með í veg fyrir að þeir næðu að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í kvöld.
Í DHL Höllinni sigruðu KR lið Hattar, en þeir höfðu tapað síðustu þremur leikjum sínum í deildinni gegn Keflavík, Haukum og svo síðast fyrir helgina gegn Tindastól.
Þá lagði Þór heimamenn í Þór á Akureyri og að Hlíðarenda bar Grindavík sigurorð af Val.
Einnig tveir leikir í 1. deild karla. Gnúpverjar sigruðu Snæfell í Fagralundi og á Akranesi lagði Vestri heimamenn í ÍA.
Úrslit kvöldsins
Dominos deild karla:
1. deild karla:




