spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2021Landsliðshópurinn fyrir leikinn gegn Belgíu klár

Landsliðshópurinn fyrir leikinn gegn Belgíu klár

Þjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfuknattleik, Craig Pedersen, og aðstoðarþjálfarar hans, þeir Finnur Freyr Stefánsson og Baldur Þór Ragnarsson, hafa valið 16 manna æfinghóp fyrir landsleikinn gegn Belgíu sem fram fer fimmtudaginn 29. nóvember í Laugardalshöllinni.
Um er að ræða annan leik liðsins í forkeppni EuroBasket 2021 en leikið er um sæti í riðlakeppninni sem hefst næsta haust.
Ísland leikur einn leik í þessum landsliðsglugga og á svo tvo síðustu leiki sína í febrúar 2019, en þá er leikinn einn leikur heima og einn úti.
Ljóst er að í þessum glugga að þeir Martin Hermannsson, Alba Berlin, og Kári Jónsson, Barcelona, eru báðir meiddir og geta ekki tekið þátt í leiknum á fimmtudaginn.
Hópurinn hefur æfingar næstkomandi mánudag og æfa í vikunni fram að leik og er hann þannig skipaður:
Leikmaður · Félagslið
Collin Pryor · Stjarnan
Dagur Kár Jónsson · Raiffeisen Flyers Wels, Austurríki
Danero Thomas · Tindastóll
Elvar Már Friðriksson · Njarðvík
Gunnar Ólafsson · Keflavík
Haukur Helgi Briem Pálsson · Nanterre 92, Frakkland
Haukur Óskarsson · Haukar
Hjálmar Stefánsson  · Haukar
Hlynur Bæringsson · Stjarnan
Hörður Axel Vilhjálmsson · Keflavík
Jón Arnór Stefánsson · KR
Kristinn Pálsson · Njarðvík
Kristófer Acox · KR
Ólafur Ólafsson · Grindavík
Tryggvi Snær Hlinason · Monbus Obradoiro, Spánn
Ægir Þór Steinarsson · Stjarnan
Fréttir
- Auglýsing -