Körfuknattleikssambandið tilkynnti rétt í þessu hvaða leikmenn það verða sem að munu leika fyrir Íslands hönd á Smáþjóðaleikunum sem fara fram í San Marínó 30. maí til 3. júní. Nokkuð er um nýliða í hópunum, þar sem Birna Valgerður Benónýsdóttir úr Keflavík mun ein leika sína fyrstu leiki fyrir Ísland kvennamegin, en karlamegin eru þeir níu talsins. Það gert að einhverju leyti bæði til þess að leyfa þeim leikmönnum sem eru að fara á U-20 Evrópumót að spreyta sig sem og til þess að skoða þessa yngri leikmenn.
Frétttilkynning KKÍ:
Búið er að velja þá 12 leikmenn sem munu skipa landslið Íslands, hjá konum og körlum, á Smáþjóðaleikunum, GSSE 2017, sem fara fram í San Marínó dagana 30. maí til 3. júní.
Ísland sendir til leiks landslið karla og kvenna í keppnina en þetta eru 17. leikar smáríkja Evrópu sem haldnir eru annað hvert ár. Síðustu leikar voru haldnir hér á landi fyrir tveimur árum þar sem bæði liðin okkar höfnuðu í 2. sæti.
Í báðum landsliðunum í þessu verkefni fá leikmenn sem leika í háskólum í Bandaríkjunum tækifæri til að taka þátt, sem er gleðiefni, en margir efnilegir leikmenn, sem hafa verið í yngri landsliðum og A-liðum undanfarin ár, iðka þar nám og leika körfuknattleik um þessar mundir.
Landslið kvenna er skipuð öllum þeim bestu leikmönnum sem leikfærir eru. Gunnhildur Gunnardóttir er barnshafandi og í fríi að þessu sinni. Ívar Ásgrímsson og aðstoðarþjálfarar hans Bjarni Magnússon og Hildur Sigurðardóttir, völdu 12 leikmenn í þetta verkefni, en fleiri leikmenn hafa verið við æfingar með þeim að undanförnu sem munu fá tækifæri í vináttulandsleikjum í Írlandi um miðjan júní í kjölfar Smáþjóðaleika.
Ákvörðun var tekin af þjálfurum karlaliðsins að nýta þetta mót til að skoða yngri leikmenn og nota nokkra af þeim sem eru að fara á lokamót U20 landsliða í sumar spreyta sig í bland við aðra unga leikmenn. Einungis þrír leikmenn karlaliðsins eiga A-leiki að baki sem eru í hóp að þessu sinni. Craig Pedersen, landsliðsþjálfari, valdi liðið með Finni Frey Stefánssyni og Arnari Guðjónsyni, aðstoðarþjálfurum sínum. Finnur Freyr mun stýra liðinu á leikunum en Finnur er einnig þjálfari U20 liðsins og Baldur Þór er hans aðstoðarþjálfari í báðum verkefnunum.
Eftirtaldir leikmenn skipa landslið Íslands á Smáþjóðaleikunum í San Marino 2017:
Landslið kvenna
Berglind Gunnarsdóttir · Snæfell (8)
Birna Valgerður Benónýsdóttir · Keflavík
Emelía Ósk Gunnarsdóttir · Keflavík (2)
Hallveig Jónsdóttir · Valur (5)
Helena Sverrisdóttir · Haukar (61)
Hildur Björg Kjartansdóttir · UTPA, USA / Snæfell (12)
Ingunn Embla Kristínardóttir · Grindavík (9)
Ragna Margrét Brynjarsdóttir · Stjarnan (37)
Sandra Lind Þrastardóttir · Horsholms 79’ers, DK (11)
Sara Rún Hinriksdóttir · Canisius, USA / Keflavík (9)
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir · Skallagrímur (44)
Thelma Dís Ágústsdóttir · Keflavík (2)
(Landsleikir innan sviga), Birna Valgerður er nýliði.
Þjálfarar verða Ívar Ásgrímsson og Bjarni Magnússon.
Landslið karla
Emil Karel Einarsson · Þór Þorlákshöfn
Gunnar Ólafsson · St. Francis, USA / Keflavík
Jón Axel Guðmundsson · Davidson, USA / Grindavík
Kári Jónsson · Drexler, USA / Haukar
Kristinn Pálsson · Marist, USA / Njarðvík
Kristófer Acox · KR (12)
Maciek Baginski · Þór Þorlákshöfn
Matthías Orri Sigurðarson · ÍR
Ólafur Ólafsson · Grindavík (11)
Pétur Rúnar Birgisson · Tindastóll
Tryggvi Snær Hlinason · Þór Akureyri (8)
Þórir Guðmundur Þorbjarnarsson · KR
(Landsleikir innan sviga), þrír hafa leikið áður, aðrir nýliðar.
Þjálfarar verða Finnur Freyr Stefánsson og Baldur Þór Ragnarsson.
FIBA hefur útnefnt tvo dómara frá Íslandi til að dæma á Smáþjóðaleikunum en það eru okkar FIBA dómarar, þeir Leifur S. Garðarsson og Sigmundur Már Herbertsson, sem fara fyrir hönd Íslands og dæma á leikunum.
Að auki fer 5 manna fagteymi og fararstjórn frá KKÍ á mótið liðunum til halds og trausts.
Nánar er hægt að skoða allt um leikana í ár á heimasíðu leikanna á: www.sanmarino2017.sm