Það var fjör í NBA deildinni í nótt og þá vakti mesta furðu að Kobe Bryant og félagar í LA Lakers hafi tapað á útivelli gegn Cleveland Cavaliers, lakasta liði deildarinnar. Eitthvað eru menn að lifna við í Cleveland eftir að hafa sett vafasamt tapmet í deildinni.
Cleveland 104-99 Lakers
Ramon Sessions fór á kostum hjá Cavs með 32 stig af bekknum en hjá Lakers var Pau Gasol með 30 stig og 20 fráköst.
Orlando 101-76 Washington
John Wall gerði 25 stig og gaf 7 stoðsendingar hjá Washington en í sigurliði Orlando var Dwight Howard með 32 stig og 10 fráköst.
Toronto 95-103 Miami
Chris Bosh mætti á sinn gamla heimavöll í Toronto í fyrsta sinn síðan hann gekk til liðs við Miami. Bosh gerði 25 stig í leiknum og tók 6 fráköst en atkvæðamestur í sigurliði gestanna var Dwyane Wade með 28 stig og 7 stig. Hjá Toronto var Ítalinn Andrea Bargnani með 38 stig og 4 fráköst.
Boston 94-80 New Jersey
Paul Pierce gerði 31 stig og tók 5 fráköst fyrir Boston en hjá New Jersey var Brook Lopez með 18 stig og 5 fráköst.
Detroit 115-109 Indiana
Tayshaun Prince gerði 25 stig og tók 11 fráköst í sigurliði Pistons en hjá Indiana var Roy Hibbert með 29 stig og 9 fráksöt.
New York 102-90 Atlanta
Amare Stoudemire gerði 23 stig og tók 7 fráköst í liði Knicks en hjá Atlanta var Marvin Williams með 17 stig og 8 fráköst.
Minnesota 90-98 LA Clippers
Blake Griffin gerði 29 stig og tók 8 fráköst hjá Clippers en Kevin ,,ég get ekki spilað án þess að ná í tvennu” Love gerði 18 stig og tók 18 fráköst í liði Minnesota.
Dallas 116-100 Sacramento
Átta leikmenn Dallas gerðu 11 stig eða meira í leiknum og þeirra atkvæðamestur var leikstjórnandinn margreyndi Jason Kidd með 20 stig. Hjá Sacramento var Jermaine Taylor með 17 stig en hann gerði 15 stig í fyrri hálfleik en aðeins 2 í þeim seinni.
Houston 105-114 Philadelphia
Jrue Holiday gerði 20 stig og tók 8 fráköst fyrir 76ers en hjá Rockets var Kyle Lowry með 36 stig og 7 stoðsendingar.
Milwaukee 87-94 Denver
Carmelo Anthony var sjóðheitur í liði Denver með 38 stig og 12 fráköst en hjá Milwaukee var John Salmons með 33 stig og 4 fráköst.
Utah 100-107 Golden State
Utah hefur enn ekki unnið síðan Jerry Sloan hætti með liðið. Monta Ellis var í stuði hjá Golden State með 35 stig og 7 stoðsendingar. Hjá Utah var Al Jefferson með 23 stig og 11 fráköst.
Portland 103-96 New Orleans
LaMarcus Aldridge gerði 34 stig og tók 7 fráköst fyrir Portland en hjá Hornets var David West með 27 stig og 5 fráköst.
Mynd/ Ramon Sessions gerði 32 stig fyrir Cleveland gegn Lakers í nótt.





