HomeFréttirLakers kvittuðu fyrir sig í Boston: Allen í metabækurnar

Lakers kvittuðu fyrir sig í Boston: Allen í metabækurnar

 
Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem mættust sögufrægu stórveldin Lakers og Boston en leikurinn fór fram á heimavelli þeirra grænklæddu, TD Garden. Þrátt fyrir 92-86 Lakers þá fór Ray Allen í sögubækurnar í nótt en hann setti niður þrjá þrista í leiknum og hefur þar með skorar flestar þriggja stiga körfur í NBA deildinni frá upphafi og komst því upp fyrir skotmaskínuna Reggie Miller sem gerði garðinn frægan með Indiana Pacers hér í eina tíð.
Miller var vitaskuld sjálfur á leiknum og skömmu eftir að metþristurinn fann körfuna hittust skytturnar og Miller óskaði Allen til lukku með metið og heimamenn í TD Garden fögnuðu metinu vel og lengi.
 
Kobe Bryant hrökk í gang í síðari hálfleik og skoraði 20 stig eftir að hafa skorað aðeins 3 í þeim fyrri. Hann var stigahæstur hjá Lakers í nótt en næstur var Pau Gasol með 20 stig og 10 fráköst. Hjá Boston var Ray Allen atkvæðamestur með 20 stig og glæsilegt þriggja stiga met í hús. Paul Pierce kom næstur með 15 stig.
 
Önnur úrslit næturinnar:
 
Phoenix 112-88 Golden State
Steve Nash gerði 18 stig og gaf 11 stoðsendingar hjá Phoenix en hjá Golden State voru Reggie Williams og Ekpe Udoh báðir með 16 stig af bekknum.
 
Denver 121-120 Dallas
Denver stöðvaði tíu leikja sigurgöngu Dallas í deildinni. Carmelo Anthony fór á kostum í leiknum í liði Denver og skoraði 42 stig og tók 7 fráköst. Chauncey Billups bætti við 30 stigum hjá Denver en hjá Dallas var Jason Terry enn eina ferðina stigahæstur hjá Dallas af bekknum og nú með 25 stig. Næstur var Tyson Chandler með 20 stig og 11 fráköst. Hetja næturinn hjá Denver var svo Arron Afflalo sem gerði sigurstig leiksins um leið og lokaflautan gall með stökkskoti í teignum og tryggði eins stigs sigur Denver í spennuleik.
 
Mynd/ Kobe hrökk í gír í síðari hálfleik gegn Boston.
 
Fréttir
- Auglýsing -