HomeBónus deildinBónus deild karlaLagaskipting Bónusdeildar karla – Hverjir eru meistaraefni og hverjir lenda í fallbaráttu?

Lagaskipting Bónusdeildar karla – Hverjir eru meistaraefni og hverjir lenda í fallbaráttu?

Spennan fyrir komandi tímabili í Bónusdeild karla heldur áfram að magnast og í nýjasta þætti Aukasendingarinnar mættu þeir Jón Frí og Strikerinn Árni Jó til að rýna í stöðuna.

Auk þess að fara yfir sögu nýliða síðan 1996 var tekin ítarleg yfirferð á lagaskiptingu deildarinnar fyrir komandi vetur, þar sem liðunum tólf var skipt niður í fjóra flokka eftir því hver raunveruleg markmið og geta þeirra virðast vera.

Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

Þjálfurum Tindastóls og Álftaness lenti saman á síðustu leiktíð, hér má sjá mynd af þeim á meðan allt lék í lyndi.

1.–2. MeistaraefniÁlftanes og Tindastóll: Þau lið sem standa fremst og eru talin líklegust til að fara alla leið og berjast um stærsta titilinn í vor.

Einhverjir vilja meina að Keflavík geti komið á óvart í vetur.

3.–6. Hættulegir áskorendur („Dark Horse“)Grindavík, KR, Stjarnan og Keflavík: Öflugur hópur liða sem getur vel blandað sér í baráttuna ef hlutirnir smella saman og spilað af fullum krafti gegn allra sterkustu liðunum.

Almennt er talið að veturinn verði langur í Njarðvík.

7.–8. Einskismannsland („No man’s land“)Valur og Njarðvík: Lið sem virðast ekki í mikilli fallhættu en eru á sama tíma ekki talin eiga beint erindi í allra fremstu víglínu eins og sakir standa.

Hvað nær Borche að töfra fram í Breiðholtinu?

9.–12. FallbaráttanÍR, Sindri, Ármann og Höttur: Þessi fjögur lið eru talin líklegust til að berjast blóðugri baráttu á botninum um að halda sæti sínu í efstu deild.

Fréttir
- Auglýsing -