spot_img
HomeFréttirLa Kiste Barkus til Hamars

La Kiste Barkus til Hamars

7:00

{mosimage}

Kvennalið Hamars hefur samið við erlendan leikmann.  Leikmaðurinn kemur  frá Bandaríkjunum og heitir La Kiste Barkus.  Barkus lék með Keflavík síðari hluta tímabilsins 2005 – 2006,  og þekkir því til íslensks körfubolta. 

 

Barkus er bakvörður og var með 23,3 stig að  meðaltali í leik, 8 fráköst og 4,7 stoðsendingar.  Á síðasta tímabili spilaði hún í Póllandi. Hún mun án efa styrkja lið Hamars fyrir baráttuna í Iceland Express deildinni í vetur.

Hamar hefur líka samið við alla sína leikmenn til 2ja ára svo og þjálfarann Ara Gunnarsson.

www.hamarsport.is

 

Fréttir
- Auglýsing -