spot_img
HomeNBAKyrie kláraði Toronto - Butler sterkur í sínum fyrsta leik í Phila

Kyrie kláraði Toronto – Butler sterkur í sínum fyrsta leik í Phila

Í toppslag austurdeildarinnar í NBA þurfti framlengingu til að knýja sigur og voru það Boston Celtics sem sigruðu að lokum lið Toronto Raptors, 123:116 en leikið var í TD Garden í Boston.  Kyrie Irving hlóð í tröllaleik þegar hann skilaði 43 stigum og sendi 11 stoðsendingar á félaga sína. Kawhi Leonard setti 31 stig fyrir Toronto og hirti einnig 15 fráköst. Toronto sem hófu tímabilið af krafti hafa nú tapað þremur leikjum í röð en Boston eru á tveggja leikja sigurgöngu.

 

 

Jimmy Butler er að koma sterkur inn í lið Philadelphia sem unnu í nótt sigur á Utah Jazz 113:107.  Butler skoraði 28 stig í sínum fyrsta heimaleik fyrir liðið og augljóst að hann styrkir fyrir sterkt lið Philadelphia til muna. Donovan Mitchel skoraði 31 stig fyrir Utah.

 

 

Önnur úrslit fóru þannig:

Indiana – Miami 99:91
Brooklyn – Washington 115:104
Kings – Grizzlies  104:112
Trail Blazers – Timerwolves 96:112
NY Knicks – N.O. Pelicans 124:129
Bulls – Bucks 104:123

 

Fréttir
- Auglýsing -