spot_img
HomeFréttirKristófer verður í búning með KR í kvöld

Kristófer verður í búning með KR í kvöld

Kristófer Acox hefur ekkert verið með KR í upphafi þessa tímabils sökum meiðsla í hné en verður kominn í búning í kvöld þegar vesturbæingar heimsækja Keflavík í Toyota-höllina í Domino´s deild karla.
 
,,Ég fór í segulómskoðun í dag og það er von á niðurstöðum,” sagði Kristófer í snörpu spjalli við Karfan.is en hann mun hita upp með KR-ingum og sjá til hvernig hlutirnir æxlast eftir það.
 
,,Ég er spenntur fyrir því að byrja aftur enda þreytandi að vera bara áhorfandi á æfingum og í leikjum,” sagði Kristófer sem verður bragabót fyrir vesturbæinga enda fer þarna reyndur leikmaður úr yngri landsliðum Íslands sem getur hjálpað KR verulega á báðum endum vallarins.
 
Mynd/ Úr safni: SOA
  
Fréttir
- Auglýsing -