spot_img
HomeFréttirKristinn: Vonbrigði að meiðast í fyrsta leik

Kristinn: Vonbrigði að meiðast í fyrsta leik

15:48

{mosimage}
(Kristinn í leik með Fjölni á Reykjavíkurmótinu)

Það er hægt að segja að fyrstu skref landsliðsmannsins Kristins Jónassonar hjá Fjölni hafi ekki verið gæfuspor. Eftir aðeins eina og hálfa mínútu í fyrsta leik Iceland Express-deildar karla meiddist hann og verður frá næstu vikurnar. Kristinn sem gekk til liðs við Fjölni frá Haukum snéri sig á ökkla.

,,Ég var að hoppa upp í frákast og einhver stjakar við mér og lendi svo eitthvað illa, sný á mér ökklann. Þetta var aðeins þriðja vörnin hjá okkur. Ég kom aftur inn á þriðja leikhluta en gat ekkert hreyft mig. Ég hef verið að kæla þetta í dag og fer svo til sjúkraþjálfara,” sagði Kristinn.

Kristinn varð fyrir samskonar meiðslum fyrir ári síðan þegar hann lék með Haukum. ,,Ég verð að taka því rólega á næstunni. Ég lenti í sömu meiðslum í fyrra og þá fór ég of geyst af stað og meiddist síðan strax aftur. Ég var að kljást við þessi meiðsli langt fram í janúar.” Kristinn sagði að það væru mikil vonbrigði að meiðast svona fljótt enda búinn að vera duglegur að æfa undanfarið. ,,Þetta var frekar dapurt. Ég er búinn að æfa mikið og er kominn í gott form, þetta er frekar þreytt.”

Aðspurður um gengi Fjölnis í vetur sagði Kristinn að liðið væri betra en þetta 11. sæti sem liðinu hafi verið spáð og taldi liðið eiga eftir að gera miklu betur.

mynd: Karfan.is

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -