HomeFréttirKristinn Pálsson á heimleið

Kristinn Pálsson á heimleið

Bakvörðurinn Kristinn Pálsson hefur ákveðið að yfirgefa Bandaríska háskólann Marist og mun vera á heimleið. Það var Visir.is sem greindi frá þessu fyrst í morgun. 

 

Kristinn er á sínu þriðja ári í Marist og hefur tekið þátt í 13 leikjum liðsins í vetur. Hann var byrjunarliðsmaður lungað af síðasta tímabili og hafði verið mikilvægur hlekkur í liði Marist. 

 

Samkvæmt frétt frá Bandríkjunum mun Kristinn vera á heimleið vegna andláts í fjölskyldunni. Hann er uppalinn í Njarðvík og lék þar áður en hann fór til Ítalíu 16 ára gamall þar sem hann lék með Stella Azzurra áður en hann fór til Marist.

 

Kristinn var lykilmaður í U20 landsliði Íslands sem lék í A-deild evrópumótsins í sumar. Kristinn getur samið við lið eftir áramót þegar félagaskiptaglugginn opnar. 

 

Fréttir
- Auglýsing -