Súfufundur körfuknattleiksdeildar Þórs var haldinn í félagsheimilinu Hamri fimmtudagskvöldið 21. maí þar sem tæplega sextíu manns komu saman til að ræða stöðu og framtíð íþróttarinnar á Akureyri. Fundurinn einkenndist af hreinskilnum og uppbyggilegum umræðum þar sem skýr vilji kom fram um að efla starfið enn frekar í Þorpinu.
Samkvæmt upplýsingum frá fundinum er fjárhagsstaða deildarinnar nokkuð góð. Hins vegar var lögð áhersla á mikilvægi þess að fjölga sjálfboðaliðum og verður verkefnum skipt upp í afmörkuð og viðráðanleg hlutverk til að auðvelda fólki að leggja hönd á plóg. Fjöldi fundargesta gaf kost á sér til starfa og hvetja forsvarsmenn deildarinnar áhugasama til að skrá sig í Facebook-hópinn Bakland Þór Akureyri.

Körfuknattleiksdeild Þórs á sér 68 ára sögu og nýtur mikils velvilja í samfélaginu. Yngri flokka starfið er umsvifamikið og hélt unglingaráð deildarinnar nýverið utan um lokaumferð Íslandsmótsins í minnibolta ellefu ára barna. Þá mættu um 700 keppendur á hið árlega Dominos-mót sem haldið hefur verið á Akureyri frá árinu 2019. Eftir lítilsháttar fækkun iðkenda í vetur er stefnt að því að komast aftur yfir 200 iðkendur í yngri flokkum, en deildin á sem stendur óvenju marga fulltrúa í unglingalandsliðum Íslands.

Tímabilið reyndist meistaraflokki karla krefjandi og kvennaliðið missti flugið eftir góða frammistöðu framan af vetri, en einungis er eitt og hálft ár síðan liðið varð Meistarar meistaranna eftir sigur gegn Keflavík. Framtíðin er þó talin björt þar sem báðir meistaraflokkar byggja á ungum og efnilegum leikmönnum. Ungir iðkendur hafa einnig sterkar fyrirmyndir, en landsliðsmiðherjinn Tryggvi Hlinason er uppalinn hjá félaginu ásamt þeim Júlíusi Orra Ágústssyni og Evu Wium sem létu að sér kveða með Tindastóli og Stjörnunni í vetur.

Auk hefðbundinna æfinga og keppni heldur deildin úti fjölbreyttum viðburðum, þar á meðal götukörfuboltamóti á Akureyrarvöku og hinu árlega Pollamóti Þórs, sem er fjölmennasta öldungamót landsins í körfuknattleik. Ljóst er af umræðum fundarins að hefðin og grunnurinn undir körfuboltanum á Akureyri er sterkur og horfa forsvarsmenn deildarinnar bjartsýnum augum til framtíðarinnar.




