HomeFréttirKR vann fyrsta bardagann: The Walker Show í DHL-Höllinni

KR vann fyrsta bardagann: The Walker Show í DHL-Höllinni

 
KR leiðir einvígið 1-0 gegn Njarðvíkingum eftir frækinn 92-80 sigur á gestum sínum í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum Iceland Express deildar karla. Marcus Walker fór á kostum í liði KR í síðari hálfleik, setti upp sýningu og stýrði KR-ingum til sigurs. Walker lauk leik með 33 stig, 6 fráköst, 5 stoðsendingar og 4 stolna bolta. Næsti leikur liðanna er sunnudaginn 20. mars í Ljónagryfjunni í Njarðvík þar sem KR getur með sigri komist áfram en vinni Njarðvíkingar verður oddaleikur í DHL-Höllinni.
Njarðvíkingar bitu fyrst frá sér og leiddu 2-6 eftir þrist frá Jóhanni Árna Ólafssyni. Í stöðunni 6-12 og fimm mínútur liðnar af leiknum tók Hrafn Kristjánsson leikhlé fyrir KR-inga sem voru að tapa frákastabaráttunni illa á fyrstu mínútum leiksins. Jonathan Moore tók smá rispu fyrir Njarðvíkinga í KR teignum eftir leikhléið og grænir héldu frumkvæðinu og leiddu 19-23 eftir fyrstu tíu mínúturnar þar sem Giordan Watson skoraði sín fyrstu stig með flautukörfu í KR teignum.
 
Guðmundur Jónsson opnaði annan leikhluta fyrir gestina með þrist og staðan 21-26. Brenton Birmingham fór snemma af velli í öðrum leikhluta í liði Njarðvíkinga en hann kom seint inn í þeim fyrsta og fann sig ekki þessar mínútur í fyrri hálfleik.
 
Njarðvíkingar komust í 25-33 þegar allt féll í lás, hægt og bítandi færðust KR-ingar nærri á þessum kafla þar sem vörnin var í fyrirrúmi og náðu að minnka muninn í 31-33 en Jóhann Árni Ólafsson átti lokaorðið í fyrri hálfleik og kom Njarðvík í 33-38 með þrist og þannig stóðu leikar í hálfleik.
 
Njarðvíkingar áttu frákastabaráttuna í fyrri hálfleik með 21 frákast gegn 14 hjá heimamönnum. Jonathan Moore var með 10 stig og 9 fráköst í liði Njarðvíkinga og þeir Jóhann Árni og Nenad báðir með 6 stig. Hjá KR var Finnur Magnússon með 10 stig og Marcus Walker 6. Fannar Ólafsson var í byrjunarliði KR í kvöld og var með 3 stig og 2 fráköst í hálfleik en hann og Friðrik Erlendur Stefánsson tóku myndarlega stórustráka rimmu undir lok fyrri hálfleiks, ekkert óeðlilegt við það.
 
Giordan Watson kom með látum inn í Iceland Express deildina fyrir skemmstu, gerði 70 stig í tveimur fyrstu leikjunum sínum á Íslandi og varð á einni nóttu á allra vörum. Marcus Walker bauð Watson hinsvegar velkominn í DHL-Höllina og setti upp magnaða sýningu í síðari hálfleik!
 
11-4 áhlaup KR í upphafi síðari hálfleiks kom röndóttum í 44-42 og síðar 49-44 þar sem Walker hafði gert átta stig í röð fyrir Vesturbæinga og leikmenn liðsins sem og stuðningsmenn tóku vel við sér.
 
Brynjar Þór Björnsson haltraði á kafla í þriðja leikhluta en kláraði þó leikinn og þó Njarðvíkingar næðu að bíta frá sér undir lok þriðja leikhluta leiddu heimamenn 62-56 að honum loknum og unnu leikhlutann 29-18 þar sem vörnin var gríðarsterk lengstum þó þeir gæfu smá eftir síðustu tvær mínútur leikhlutans.
 
Jóhann Árni Ólafsson minnkaði muninn í 62-59 fyrir Njarðvík með þriggja stiga körfu en nær komust gestirnir ekki, Walker var hvergi nærri hættur og tætti í sig svæðisvörn gestanna og þegar grænir ætluðu að skipta yfir í maður á mann keyrðu KR-ingar í bakið á þeim og Brynjar Þór Björnsson þakkaði fyrir sig með þrist. KR var að gera allt rétt í síðari hálfleik.

 
Walker jók svo muninn í 10 stig, 79-69 og heimamenn að sundurspila Njarðvíkurvörnina. Þegar rúmar tvær mínútur voru til leiksloka fór Fannar Ólafsson af velli með fimm villur í liði KR, allskostar ósáttur við ruðningsvilluna sem dæmd var á hann en þetta hafði ekki nokkur áhrif á heimamenn sem kláruðu leikinn af öryggi 92-80.
 
Njarðvíkingar voru ískaldir í þristunum sínum í kvöld, settu aðeins 6 af 31 tilraun en KR-ingar settu niður 10 þrista í 27 tilraunum. Eins og áður hefur komið fram mætast liðin í sínum öðrum leik á sunnudag, KR dugir sigur til að komast í undanúrslit en Njarðvíkursigur þýðir að blásið verður til oddaleiks á heimavelli KR.

Myndasafn úr leiknum eftir Tomasz Kolodziejski

 
Byrjunarliðin:
 
KR: Pavel Ermolinskij, Marcus Walker, Brynjar Þór Björnsson, Finnur Magnússon og Fannar Ólafsson.
 
Njarðvík: Giordan Watson, Nenad Tomasevic, Jóhann Árni Ólafsson, Jonathan Moore og Páll Kristinsson.
 
Heildarskor:
 
KR: Marcus Walker 33/6 fráköst/5 stoðsendingar, Brynjar Þór Björnsson 20/5 fráköst, Finnur Atli Magnússon 12, Fannar Ólafsson 9/4 fráköst, Pavel Ermolinskij 6/9 fráköst/11 stoðsendingar, Hreggviður Magnússon 5, Ólafur Már Ægisson 3, Skarphéðinn Freyr Ingason 2, Jón Orri Kristjánsson 2, Páll Fannar Helgason 0, Matthías Orri Sigurðarson 0, Ágúst Angantýsson 0.
 
Njarðvík: Melzie Jonathan Moore 20/11 fráköst, Giordan Watson 12/6 stoðsendingar, Jóhann Árni Ólafsson 11/5 fráköst, Guðmundur Jónsson 10, Hjörtur Hrafn Einarsson 8, Páll Kristinsson 7, Nenad Tomasevic 6, Friðrik E. Stefánsson 2, Brenton Joe Birmingham 2, Egill Jónasson 2, Rúnar Ingi Erlingsson 0, Kristján Rúnar Sigurðsson 0.
 
Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson, Jón Guðmundsson
 
Myndir/ Tomasz Kolodziejski – [email protected]  
 
Umfjöllun/ Jón Björn Ólafsson[email protected]  
Fréttir
- Auglýsing -